fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Pressan

Eiginkonan lést – Kom hann upp um sig með þessum orðum?

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 3. september 2022 22:00

Bianca og Lawrence

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski tannlæknirinn Lawrence Rudolphs var nýlega fundinn sekur um að hafa skotið eiginkonu sína til bana í safaríferð í Sambíu. Síðustu sex árin hefur Lawrence haldið því staðfastlega fram að eiginkona hans, Bianca, hafi skotið sjálfa sig til bana í hörmulegu slysi.

En fyrr í mánuðinum komst bandarískur dómstóll að þeirri niðurstöðu að Lawrence, sem er velstæður tannlæknir búsettur í Arizona, hafi skotið Bianca til bana og að það hafi verið ætlun hans til að geta fengið líftryggingu hennar greidda út og til að hefja ástarsamband við aðra konu.

People skýrir frá þessu.

Málið hófst í október 2016. Þá voru Lawrence og Bianca, sem höfðu verið gift í 34 ár, stödd í Kafue þjóðgarðinum í Sambíu. Þar ætlaði Bianca, sem var mikil veiðikona, að skjóta hlébarða. Snemma að morgni 11. október heyrðist skothvellur frá kofa hjónanna. Biancasm var 54 ára, fékk skot í bringuna og lést á staðnum.

Kofinn sem hjónin gistu í.

 

 

 

 

 

Lawrence hélt því strax fram að Bianca hefði fyrir slysni hleypt skotinu af þegar hún var að handleika byssuna sína. Lögreglan í Sambíu komst að sömu niðurstöðu og lauk málinu á þeim grunni.

En bandarísk yfirvöld voru ekki sannfærð um að um slys hefði verið að ræða og sérstaklega ekki í ljósi þess að Lawrence lét brenna lík Bianca nokkrum dögum eftir lát hennar. Þar með voru sönnunargögn horfin.

Lawrence var þaulreyndur veiðimaður og var vanur að flytja dauð dýr heim til Arizona. Af þeim sökum fannst bandarískum yfirvöldum grunsamlegt að hann hefði látið brenna Bianca og það án þess að ráðfæra sig við aðra í fjölskyldunni.

Lawrence var þaulreyndur veiðimaður.

 

 

 

 

 

 

 

Nokkrum dögum síðar barst alríkislögreglunni FBI ábending frá vini Bianca sem sagði að Lawrence hefði haldið framhjá henni og að þau hefðu rifist um fjármál.

Rannsókn FBI leiddi í ljós að Lawrence hafði fengið greiddar sem nemur um 700 milljónum íslenskra króna í líftryggingu eftir dauða Bianca.

Komu þessi orð upp um hann?

Lögreglan hóf því að rannsaka málið af miklum krafti en það liðu fimm ár áður en nægra sannana hafði verið aflað til að hægt væri að handtaka Lawrence en það var gert í árslok 2021.

Réttarhöldin voru að sögn mjög dramatísk. Lawrence hélt því fram að hann hefði ekki myrt Bianca og endurtók hvað eftir annað: „Ég myrti ekki konuna mína, ég gæti ekki myrt konuna mína, mér myndi ekki detta í hug að myrða konuna mína.“

Lawrence og Lori

 

 

 

 

 

 

Í réttarhöldunum komu þó fram upplýsingar sem veiktu vörn hans mjög. Það var framburður þjóns eins sem hafði þjónað Lawrence og nýju unnustu hans, Lori Milliron, til borðs á steikhúsi árið 2020. Þau höfðu oft komið á steikhúsið en þetta kvöld byrjuðu þau að rífast og gekk mikið á. Þjóninn átti í fyrstu erfitt með að heyra hvað þau voru að rífast um, því hávær tónlist var leikinn á staðnum. En á einum tímapunkti stöðvaðist tónlistinni í smá stund og þá heyrði hann Lawrence hrópa: „Ég drap helvítis konuna mína fyrir þig!“

Lawrence hélt því fram fyrir dómi að þjónninn hefði ekki heyrt rétt því hann hafi hrópað: „Nú segja þeir að ég hafi drepið helvítis konuna mína fyrir þig!“

En kviðdómendur voru ekki í neinum vafa og fundu hann sekan um morð að yfirlögðu ráði. Lori var fundin sek um að hafa villt um fyrir réttinum og að hafa vitað að hann hefði myrt Bianca.

Lawrence og Lori hafa áfrýjað dómnum en reiknað er með að endanleg niðurstaða áfrýjunardómstóls liggi fyrir í febrúar á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Skotinn til bana nokkrum dögum eftir að hafa verið náðaður af Trump

Skotinn til bana nokkrum dögum eftir að hafa verið náðaður af Trump
Pressan
Fyrir 2 dögum

Í fyrsta sinn í 30 ár – Fimm dagar í röð án þess að nokkur væri skotinn í New York – Jinxaði löggan þetta?

Í fyrsta sinn í 30 ár – Fimm dagar í röð án þess að nokkur væri skotinn í New York – Jinxaði löggan þetta?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hér er besti matur í heimi

Hér er besti matur í heimi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta á ekki að setja í airfryer

Þetta á ekki að setja í airfryer
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þess vegna er svefn svo mikilvægur þegar kemur að ævilengd

Þess vegna er svefn svo mikilvægur þegar kemur að ævilengd
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þessi mistök í ísskápnum geta eyðilagt matinn

Þessi mistök í ísskápnum geta eyðilagt matinn