Svona hefst Facebookfærsla Karoline Granum, þrítugrar sjúkraflutningskonu frá Leira í Noregi, en færslan hefur vakið mikla athygli, bæði í Noregi og erlendis.
„Sá ótti reyndist vera mjög lítill því bréfið, sem var í póstkassanum, var allt annað,“ segir hún næst í færslu sinni.
Um handskrifað bréf var að ræða og var það til Karoline og eiginkonu hennar, Trine, frá manneskju sem er mótfallin því að þær hafi gift sig og eignast börn.
„Fjandinn hafi það hvað þetta er ógeðslegt. Ef ég hefði vitað að barnið mitt myndi vera í sama skóla og „sonur“ tveggja píkusleikjara hefði ég skipt um skóla. Hvor ykkar er móðirin og hvor er faðirinn?“
Skrifar hinn nafnlausi sendandi í bréfinu sem Karoline birti mynd af.
„Ógeðslega huggulegt fyrir börnin ykkar að eiga tvær lesbíur sem foreldra. Báðar jafn karlmannlegar. Ég vona að þið eignist ekki fleiri börn. Það getið þið ekki sjálfar. Þið verðið þá að ná í eitthvað annað en tvær fúlar píkur. Helvítis lesbíur,“ segir einnig í bréfinu.
Karoline og Tina kærðu málið til lögreglunnar á mánudaginn en það hefur vakið reiði, sorg og ótta meðal fjölskyldunnar. „Þetta var mjög óþægileg upplifun. En við höfum fengið mikinn stuðning, mjög mörg símtöl frá fólki sem við þekkjum og þekkjum ekki. Fólk er reitt,“ sagði Karoline í samtali við Dagbladet.