DV skýrði frá málinu fyrr í mánuðinum.
Dularfulla ferðatöskumálið vindur upp á sig – Tvö barnslík fundust
Í tilkynningu sem lögreglan sendi frá sér kemur fram að nú hafi kennsl verið borin á líkin. Ekki verður skýrt frá nöfnum þeirra eða öðru varðandi þau að ósk ættingja þeirra.
Lögreglan hóf morðrannsókn eftir að líkin fundust í töskunum þann 11. ágúst.
Tofilau Faamanuia Vaaelua, sem stýrir rannsókninni, sagði fyrr í mánuðinum að börnin hafi líklega verið á aldrinum 5 til 10 ára þegar þau létust. Hann sagði það mat lögreglunnar að börnin hafi látist fyrir þremur til fjórum árum.
CNN segir að lögreglan í Seoul í Suður-Kóreu hafi sagt að kona, sem talið er að sé móðir barnanna, hafi verið þar í landi þann 22. ágúst. Lögreglan í Suður-Kóreu vinnur að málinu í samstarfi við nýsjálensku lögregluna og Alþjóðalögregluna Interpol.