Nú hafa kennsl verið borin á einar af þessum líkamsleifum að sögn CNN. Þær fundust fyrir tæpum fjórum mánuðum. Þær eru af Thomas Erndt en talið er að hann hafi drukknað í vatninu þann 2. ágúst 2002 en ekki hefur verið endanlega skorið úr um dánarorsök hans að sögn lögreglunnar. Erndt var 42 ára þegar hann lést.
Líkamsleifar hans fundust á Calville Bay svæði vatnsins þann 7. maí.
Líkamsleifarnar og margt annað hefur fundist í vatninu að undanförnu vegna þess hversu mikið vatnsborðið í því hefur lækkað vegna mikilla þurrka í vesturhluta Bandaríkjanna.
Meðal líkamsleifanna, sem hafa fundist, eru líkamsleifar sem voru í tunnu. Skotsár var á þeim og er talið að viðkomandi hafi verið myrtur á áttunda eða níunda áratug síðustu aldar.
Þá hafa líkamsleifar fundist þrisvar sinnum á Boulder Swim Beach en ekki er vitað hvort þær eru allar af sama einstaklingnum eða fleiri.