DV skýrði frá málinu í gær en þá hafði lögreglan aðeins skýrt frá því að líkamsleifar hefðu fundist í ferðatösku og hafði ekki getið neitt um að um barnslík væri að ræða og hvað þá tvö.
Nýsjálenskir fjölmiðlar skýra frá því í dag að um tvö barnslík sé að ræða. Þetta séu lík barna á grunnskólaaldri.
Fjölskyldan, sem keypti töskurnar, keypti fulla kerru af hlutum á uppboði í geymsluhúsnæði og hafði ekki hugmynd um hvað var í töskunum. Það uppgötvaðist ekki fyrr en heim var komið. Á uppboðinu voru seldir munir úr geymslum sem leiga hafði ekki verið greidd fyrir í einhvern tíma.
Fjölskyldan er ekki grunuð um að tengjast láti barnanna á neinn hátt.
RNZ hefur eftir Tofilau Faamanuia Vaaelua, sem stýrir rannsókn lögreglunnar, að líklega hafi líkin verið í geymslunni í mörg ár. Hann sagði að ekki sé reiknað með að upptökur úr eftirlitsmyndavélum muni koma að gagni við rannsóknina því svo langur tími hafi liðið frá dauða barnanna þar til líkin fundust. Líklega sé búið að eyða upptökum úr geymsluhúsnæðinu frá þessum tíma.
Hann sagði að réttarmeinafræðingar hafi átt í erfiðleikum með að bera kennsl á börnin en talið sé að þau hafi verið á aldrinum 5 til 10 ára. Lík þeirra voru í tveimur ferðatöskum, svipuðum að stærð.
Vaaelua sagði að þrátt fyrir að lögreglan standi frammi fyrir erfiðri rannsókn muni hún ekki leggja árar í bát og muni gera allt sem í hennar valdi stendur til að hafa uppi á þeim sem ber eða bera ábyrgð á dauða barnanna. Rannsóknin sé á frumstigi og mörgum spurningum sé ósvarað.
Hann sagði að lögreglan njóti aðstoðar Alþjóðalögreglunnar Interpol við rannsóknina.