Í heildina söfnuðust 400.000 dollarar. Mark og unnusta hans, Katelyn McClure eyddi öllum peningunum í ferð til Las Vegas, BMW, þyrluflug yfir Miklagljúfur og handtöskur frá Louis Vuitton.
Sky News hefur eftir saksóknurum að honum hafi einnig verið gert að endurgreiða alla upphæðina.
Skötuhjúin hrundu söfnuninni af stað 2017 og sögðust meðal annars vera að safna fyrir heimilislausn mann að nafni Johnny Bobbitt. Katelyn sagðist hafa orðið bensínlaus í Philadelphia og hefði þá rekist á Johnny Bobbitt sem hefði notað síðustu 20 dollarana sína til að kaupa bensín handa henni.
Skötuhjúin báðu fólk um að styðja Bobbitt fjárhagslega svo hann gæti leigt sér íbúð og keypt bíl. Rúmlega 14.000 manns létu fé af hendi rakna.
Málið komst í fréttir og þremenningarnir komu meðal annars fram í sjónvarpi.
Innan nokkurra mánaða höfðu Mark og Kately eytt öllu fénu nema 75.000 dollurum sem Johnny Bobbitt fékk í sinn hlut. Hann var ekki sáttur við þetta og höfðaði mál á hendur.
Tæpu ári síðar játaði hann að hafa tekið þátt í samsæri um að svíkja fé út úr fólki í söfnuninni.