Hann flúði 500 kílómetra leið til Clinton County. Þar fann lögreglan hann á kornakri. Hann neitaði að gefast upp og þegar lögreglumenn nálguðust hann dró hann upp skammbyssu og skaut úr henni.
Lögreglan svaraði skothríðinni og skaut manninn til bana að sögn The New York Times.
NBC News segir að kennsl hafi verið borin á árásarmanninn síðdegis í gær. Hann hét Ricky Walter Shiffer. Hefur miðillinn heimildir fyrir að hann hafi tekið þátt í árás stuðningsmanna Donald Trump, þáverandi forseta, á þinghúsið þann 6. janúar á síðasta ári. Það hefur ekki enn verið staðfest opinberlega.
Shiffer birti myndir af sér á samfélagsmiðlum á fjöldafundi Donald Trump daginn áður en ráðist var á þinghúsið og hann hafði lýst yfir stuðningi við Proud Boys, sem eru samtök öfgahægri manna. The Washington Post skýrir frá þessu.
Shiffer skrifaði færslur á Truth Social, samfélagsmiðil Donald Trump, á síðustu dögum um að hann væri að undirbúa árás á FBI. Aðgangi hans þar var eytt í gærkvöldi.
Ekki er vitað hvort árásin í gær tengist húsleitinni sem FBI gerði heima hjá Donald Trump á mánudaginn en stuðningsmenn hans eru mjög óánægðir með hana.