Clenney er 26 ára. Miami Herald segir að hún sé grunuð um að hafa stungið unnusta sinn til bana.
Verjandi hennar, Frank Prieto, sagði í samtali við Miami Herald að Clenney hafi verið á Hawaii til að sækja sér meðferð vegna fíkniefnanotkunar og til að fá aðstoð vegna áfallastreitu. Hann sagði að handtakan hafi komið á óvart því Clenney hafi verið samvinnuþýð við lögregluna.