Kyvi Independent skýrir frá þessu. Nafnið á vefsíðunni og þar með verkefninu er sótt til orðsins „Onlyfans“, sem er vel þekkt vefsíða þar sem notendur geta keypt sér aðgang að erótísku efni eða klámefni, en „Ter“ er hluti af orði yfir herdeild innan úkraínska hersins, orð sem á íslensku þýðir „Svæðisvarnardeildin“.
Það voru hin úkraínska Anastasija Kuchmenko og hin hvítrússneska Nastija Nasko sem áttu hugmyndin að verkefninu og ýttu því úr vör. Þær eru báðar í Póllandi um þessar mundir.
„Við byrjuðum þetta verkefni af hreinni örvæntingu og í gríni,“ sögðu þessar ungu konur. Í fyrstu seldu þær aðeins myndir af sjálfum sér en síðan hefur fjölgað í hópnum og nú er 40 konur og karlar í honum.
Ekki er í bígerð að hætta verkefninu og sögðu þær stöllur að því verði ekki hætt fyrr en Pútín deyr.
Til að fá aðgang að efni á Teronlyfans verður að láta fé af hendi rakna til ákveðinna verkefna, til dæmis húsaskjól fyrir úkraínska flóttamenn, til Azov-herdeildarinnar og samtaka sem styðja úkraínska herinn.