Hann elti fjölskylduna inn í verslun þar sem hann greip nokkra eldhúshnífa úr hillunum og réðst síðan á fjölskylduna með þá að vopni. Hann náði að stinga fjölskylduföðurinn og sex ára barn. CNN skýrir frá þessu.
Þegar hann var handtekinn öskraði hann: „Hypjið ykkur frá Bandaríkjunum!“ á fjölskylduna.
Hann játaði síðan að hafa ráðist á fjölskylduna af því að hann taldi hana vera frá Kína sem hafði að hans mati komið heimsfaraldri kórónuveirunnar af stað. Hann játaði einnig að hafa ætlað að drepa fjölskylduföðurinn og börnin.