„Þetta var fyrir mörgum árum. Ég hef þroskast síðan sem manneskja og tel nú að ég geti sagt söguna og ekki liðið svo illa yfir henni,“ segir hún í myndbandinu.
„Ég er ekki alveg viss um hversu gömul ég var. Ég held að ég hafi verið um 17 ára og var í sambandi við bróður yfirmanns míns á þessum tíma. Ég var virkilega ástfangin af honum. Ég veit ekki af hverju en ég var ótrúlega ástfangin, kom ekki nálægt öðrum strákum og hann var sá eini, á þessum tíma,“ segir hún.
Lauren notaði getnaðarvarnarpillu á þessum tíma og var góð í að muna eftir að taka hana. Þegar hún fór dag einn til að sækja nýjan skammt spurði hjúkrunarfræðingur hana hvort hún vildi ekki skella sér í klamýdíupróf. Það vildi hún ekki því hún var viss um að hún væri ekki með kynsjúkdóminn.
„Hún sagði: „Þetta er ekkert mál. Þetta er bara próf. Það er neikvætt ef þú ert svona örugg.“ Ég sagði: „Ég þarf ekki á því að halda,““ segir Lauren og bætir við að hún hafi margoft sagt nei því bæði hún og kærastinn hafi farið í próf þegar þau voru að byrja saman.
„Þessi kona gafst ekki upp. Ég er ánægð með það. Hún hélt áfram að segja: „Þetta er bara sýnatökupinni.“ Svo ég gerði þetta bara. Ég fór á klósettið, tók prófið, skilaði þvagsýninu og sýnatökupinnanum og var búin.“
Hún gleymdi síðan að hún hefði tekið þetta próf en tveimur vikum síðar var hringt í hana frá heilsugæslustöðinni og henni sagt að sýnið hefði reynst jákvætt, hún væri með klamýdíu.
„Amma var sú fyrsta sem ég sagði þetta. Hún sagði: „Það er gott að þú komst að því.“ Því það er auðvitað mjög alvarlegt ef þú uppgötvar ekki að þú sért með klamýdíu því hún getur komið í veg fyrir barneignir. Ég grét því mikið því ég hafði alltaf óskað að eignast börn.“
Lauren fékk viðeigandi lyfjakúr til að losna við klamýdíuna. Þegar hún sagði kærastanum sínum að hún hefði greinst með klamýdíu neitaði hann að hafa smitað hana. „Hann hélt framhjá mér. Ég held að hann hafi sagt að hann hafi sofið hjá þremur öðrum.“
Hún lýkur myndbandinu síðan á að senda aðvörun til áhorfenda: „Þrátt fyrir að þér finnist að kærastinn þinn sé frábær, þá skaltu fara í próf eða nota smokk. Í alvöru.“