„Hangry“ hefur verið notað yfir það þegar fólk er reitt og pirrað vegna þess að það er svangt.
Í fréttatilkynningu frá Anglia Ruskin háskólanum kemur fram að niðurstöður nýrrar rannsóknar sýni að það sé vel hægt að vera „hangry“. Videnskab skýrir frá þessu.
Fram kemur að 64 fullorðnir hafi tekið þátt í rannsókninni sem stóð yfir í 21 dag. Þátttakendurnir áttu að svara spurningum, fimm sinnum á dag, um hversu svangir þeir voru og tilfinningar þeirra á sama tíma.
Niðurstaðan var að hægt var að tengja svengd við 37% tilfella pirrings, 34% tilfella reiði og 38% tilfella lítillar nautnar.
Viren Svami, prófessor í félagssálfræði við Anglia Ruskin háskólann og aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði að það sé gott að tilfinningin að vera „hangry“ sé nú komin á hið vísindalega landakort. „Rannsóknir benda til að það að geta sett merkimiða á tilfinningu hjálpi fólki að hafa stjórn á þeirri tilfinningu. Af þeim sökum geti aukin meðvitund um það að vera „hangry“ dregið úr líkunum á að svengd hafi neikvæð áhrif á tilfinningar og hegðun,“ sagði hún.
Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Emotion.