Nú liggja um 5.300 COVID-19-sjúklingar á áströlskum sjúkrahúsum.
Á síðustu sjö dögum hafa rúmlega 300.000 smit greinst en yfirvöld telja að þau geti verið allt að tvöfalt fleiri.
Yfirvöld hvetja fyrirtæki til að láta starfsfólk vinna heima ef hægt er að koma því við og almenningi er ráðlagt að nota andlitsgrímur innandyra og mæta í örvunarbólusetningu.