fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Pressan

Breskur karlmaður lá dáinn klukkustundum saman á sólbekk innan um strandgesti

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 19. júlí 2022 20:00

Frá Krít.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á laugardaginn fannst 54 ára breskur karlmaður dáinn á sólbekk á strönd í Stalida á Krít. Hann hafði legið hreyfingarlaus klukkustundum saman án þess að nokkur veitti því athygli. Það var ekki fyrr en starfsmenn strandarinnar reyndu að ýta við honum sem í ljós kom að hann var dáinn.

Sky News skýrir frá þessu og segir að reynt hafi verið að endurlífga manninn en það hafi ekki tekist og hafi hann verið úrskurðaður látinn þegar komið var með hann á sjúkrahús.

Ströndin á Stalida er vinsæl meðal fjölskyldufólks en hún er á norðurhluta Krít á milli Malia og Hersonissos.

Heitt hefur verið á Krít að undanförnu eins og víðar í sunnanverðri Evrópu. Tugir gróðurelda hafa blossað upp og hafa slökkviliðsmenn átt fullt í fangi með að glíma við þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Á yfirborðinu var hún guðhrædd amma en í henni bjó myrkur

Á yfirborðinu var hún guðhrædd amma en í henni bjó myrkur
Pressan
Í gær

Lauflétt ráð til að sofna hraðar

Lauflétt ráð til að sofna hraðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Færri fengu hæli í Svíþjóð á síðasta ári en nokkru sinni síðustu 40 árin

Færri fengu hæli í Svíþjóð á síðasta ári en nokkru sinni síðustu 40 árin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leita að foreldrum Elsu og tveggja systkina hennar – Heita 3,5 milljónum fyrir upplýsingar um þá

Leita að foreldrum Elsu og tveggja systkina hennar – Heita 3,5 milljónum fyrir upplýsingar um þá
Pressan
Fyrir 4 dögum

Læknir segir mikilvægt að venja sig af þessu ef blóðþrýstingurinn er of hár

Læknir segir mikilvægt að venja sig af þessu ef blóðþrýstingurinn er of hár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta eru bestu löndin til að verða gamall í

Þetta eru bestu löndin til að verða gamall í