Það eru til mörg góð krem sem draga úr þeim óþægindum sem margir verða fyrir þegar þeir eru bitnir af mýflugum. En það er nú bara þannig að þau eru ekki alltaf við höndina þegar mýflugurnar bíta mann.
En ef þú hefur aðgang að skeið, matskeið eða teskeið, og rennandi heitu vatni þá er hægt að nota það í stað sérstaks krems.
Um leið og þú uppgötvar að mýfluga hafi bitið þig er bara að finna skeið og halda henni undir rennandi heitu vatni í um eina mínútu. Því næst á að þrýsta skeiðinni að bitsvæðinu og halda henni á því í nokkrar mínútur.
Þegar þú fjarlægir skeiðina eiga bæði verkirnir og kláðinn að vera horfnir, að minnsta kosti að mestu.
Þegar mýflugur bíta okkur setja þær ákveðna tegund prótíns undir húð okkar. Þetta prótín á að tryggja að blóðið storkni ekki. Það er einmitt þetta prótín sem veldur því að okkur klæjar undan biti mýflugna. En prótínið er viðkvæmt og lifir ekki þann háa hita, sem skeiðin kallar fram, og það skýrir gagnsemi þessarar aðferðar.
Bólgan, eftir bitið, hverfur ekki strax en kláðinn ætti að hverfa.