Eins og DV skýrði frá í gær þá hafa sérfræðingar áhyggjur af nýju undirafbrigði Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Þetta afbrigði nefnist BA.2.75 og hefur verið kallað „Centaurus“ (Kentár). Það greindist fyrst á Indlandi en hefur borist til fleiri landa, þar á meðal í Evrópu. En þessa dagana er það BA.5 afbrigðið sem er í mikilli sókn víða um heim og segir prófessor fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu afbrigði og segir það vera „versta afbrigði veirunnar“ til þessa.
Kórónuveirufaraldurinn hefur verið í sókn í Evrópu og víðar að undanförnu og reikna má með að tilfellum muni fjölga enn frekar með tilkomu Kentár-afbrigðisins því það er talið vera enn meira smitandi en fyrri afbrigði. Það er betra í að sneiða fram hjá ónæmiskerfi líkamans og er jafnvel talið valda alvarlegri veikindum en önnur afbrigði Ómíkron en það hefur ekki enn verið staðfest.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur áhyggjur af Kentár-afbrigðinu og fylgist með því sem og fleiri afbrigðum veirunnar. Nýlega sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, að heimsfaraldurinn „sé ekki nærri því búinn“. Veiran sæki nú á okkur og við verðum að verjast henni sagði hann. Hann sagðist hafa áhyggjur af að faraldurinn muni á nýjan leik valda miklu álagi á heilbrigðiskerfi og heilbrigðisstarfsfólk og bað ríki heimsins um að grípa til aðgerða gegn veirunni, aðgerða sem hafi sýnt sig að virki, þar á meðal notkun andlitsgrímna og með því að bæta loftræstingu.
Eric Topol, læknir, prófessor og forstjóri Scripps Research Translationa Institute rannsóknarstofnunarinnar, segir í fréttabréfi að BA.5 afbrigðið sé „versta afbrigði veirunnar til þessa“.
CNN fjallaði um málið og bendir á að í fréttabréfinu segi Topol að afbrigðið geti sneitt fram hjá vörnum líkamans og taki faraldurinn upp á næsta stig því það sé meira smitandi en fyrri afbrigði Ómíkron.
Topol telur þó að afbrigðið valdi ekki alvarlegri veikindum en fyrri afbrigði veirunnar en reiknar samt sem áður með að innlögnum á sjúkrahús muni fjölga. „Eitt af því jákvæða í þessu er að afbrigðið virðist ekki hafa fleiri innlagnir á gjörgæslu og andlát í för með sér en fyrri afbrigði en það er samt sem áður ástæða til að hafa áhyggjur,“ sagði hann í viðtali við CNN.