Ladbible skýrir frá þessu og bendir á að það sé skynsamlegt fyrir þá sem ætla til Katar að fylgjast með HM að kynna sér lög og reglur landsins.
Meðal þessara laga er að það er bannað að stunda kynlíf utan hjónabands. Almennt er fólki refsað með eins árs fangelsi fyrir slík brot en samkvæmt því sem Human Dignity Trust segir þá er hægt að dæma fólk í sjö ára fangelsi fyrir slík brot.
Á sama hátt er kynlíf fólks af sama kyni bannað í landinu og svipuð refsing liggur við brotum gegn því ákvæði.
HM hefst 21. nóvember og lýkur 18. desember.