Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að seint í gærkvöldi hafi the Wall Street Journal skýrt frá því að gögn úr svarta kassa vélarinnar bendi til að einhver í flugstjórnarklefanum hafi viljandi látið vélina hrapa. Var þetta haft eftir heimildarmönnum sem þekkja til frummats bandarískra embættismanna.
Sky News segir að ekki sé ljóst hvort þessi kenning rannsakenda gangi út frá að annar flugmaðurinn hafi verið að verki, hvort þeir hafi tekist á eða að hvort farþegi hafi brotist inn í flugstjórnarklefann.
Talsmenn flugfélagsins sögðu the Wall Street Journal að ólíklegt væri að farþegi hefði ruðst inn í flugstjórnarklefann og bentu á að á fréttamannafundi í mars hafi talsmenn kínverskra yfirvalda sagt að engin neyðarboð hafi borist frá vélinni áður en hún hrapaði.
Flugmennirnir svöruðu ekki endurteknum köllum flugumferðarstjóra og nærstaddra flugvélar þegar vélin lækkaði flugið hratt.
Boeing 737-800 vélarnar eru forveri Boeing 737 MAX og hafa verið í notkun síðan 1997 og þykja mjög öruggar vélar.
Allt að tvö ár geta liðið þar til endanleg niðurstaða rannsóknarinnar liggur fyrir að sögn kínverskra embættismanna.