Jótlandspósturinn egir að 2050 eigi raforkuframleiðslan í Norðursjó að vera orðin að minnsta kosti 150 gígavött. Það dugir til að sjá um 230 milljónum evrópskra heimila fyrir rafmagni.
„Ef við ætlum að nýta allan þann vind sem hægt er að nýta í Norðursjó verðum við að gera þetta saman,“ sagði Mette Frederiksen, forsætisráðherra, í samtali við Jótlandspóstinn.
Framkvæmdastjórn ESB segir að þörf verði fyrir 300 gígavött af vindorku í ESB 2050. Frederiksen sagði að nú segi þessi fjögur lönd að þau ætli að útvega helminginn af þessum gígavöttum. Sagðist hún vonast til að þetta verði öðrum þjóðarleiðtogum hvatning.