Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem náði til tæplega 500.000 manns á aldrinum 38 til 73 ára. The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að bæði of mikill og of lítill svefn tengist verri hugrænni frammistöðu fólks og hafi neikvæð áhrif á andlega heilsu, þar á meðal kvíða og þunglyndi.
Rannsóknin leiddi í ljós að það virðist hafa góð áhrif á fólk að svefninn sé alltaf svipaður á lengd.
Barbara Sahakian, prófessor í sálfræði við Cambrige háskóla, sagði að við hverja klukkustund, sem víki frá sjö klukkustunda svefni, versni andlega getan. Það sé augljóst að það sem gerist í heilanum á meðan við sofum skipti mjög miklu máli við að viðhalda bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Hún sagði mikilvægt að fá góðan nætursvefn allt lífið en sérstaklega mikilvægt þegar fólk eldist. „Ég held að það sé jafn mikilvægt og að stunda líkamsrækt,“ sagði hún.
Rannsóknin hefur verið birt í tímaritinu Nature Aging.