Í byrjun mars fannst Katie Meyer, 22 ára, látin á svæði Stanford háskólans í Kaliforníu en þar stundaði hún nám. 13. apríl fannst Sarah Schulze, 21 árs, látin á svæði Michigan háskólans þar sem hún stundaði nám. 26. apríl fannst Lauren Bernett, 20 ára, látin á svæði James Madison háskólans í Virginíu.
Þær áttu það sameiginlegt að vera mjög góðar íþróttakonur sem stunduðu háskólanám. Allar tóku þær eigið líf.
Gina Meyer, móðir Katie Meyer, er að vonum brugðið vegna sjálfsvígs dóttur sinnar sem var markmaður knattspyrnuliðs Stanford háskólans. „Það var ekkert sem hringdi viðvörunarbjöllum. Hún var glöð og hafði nóg að gera. En hún var . . . hún var hamingjusöm. Það gekk vel hjá henni,“ sagði hún og bætti við að hún hefði rætt við hana nokkrum klukkustundum fyrir sjálfsvígið og þá hefði Katie verið í góðu skapi.
Fljótlega eftir sjálfsvíg hennar skrifaði Debby Waldman, ritstjóri hjá NBC News, grein um ástæðu sjálfsvígsins. Ástæðu sem ekki er vitað um. „Ég hugsa um hvort fullkomnunarárátta eigi hlut að máli. Í viðtali sagði móðir hennar að kvíði og stress fylgi því að vilja vera fullkomin. Að vera sú besta, að vera númer eitt,“ skrifaði hún og bætti við að 18 ára sonur hennar hefði næstum tekið eigið líf af sömu ástæðu. „Hversu margar ungar manneskjur verða að deyja af því að þær eru hræddar við að gera mistök?“ spurði hún síðan.
Móðir Sarah Schulze sagði að sjálfsvígið tengist væntingum, kröfum og árangri. Sarah hafi átt erfitt með að finna jafnvægi á milli alls þessa.