Miðað við niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem hefur verið birt í PLOS Genetics, þá virðist sem lyktarskyni okkar fari hægt og rólega aftur.
Í rannsókninni kemur fram að fólk sé með mismunandi útgáfur af tveimur lyktarnemum sem nema líkamslykt. Sumir eru með stökkbreytta útgáfu sem er eldri en aðrar og virðist nema lykt betur.
Rannsóknin staðfestir því kenningu, sem hefur lengi verið rædd af vísindamönnum, um að lyktarskyn fólks hafi versnað með tímanum og sé enn að versna. Science Alert skýrir frá þessu.
Britannica segir að lyktarnemarnir virki þannig að þeir finni efni, sem eru í loftinu, sem berist inn í nef okkar. Þessir lyktarnemar virka þó á mjög mismunandi hátt hjá fólki.
Niðurstöður rannsóknar frá 2013 sýndu að rúmlega 30% munur væri á virkni lyktarnemanna hjá tveimur manneskjum. Þetta byggðist á erfðum. Þess vegna finnst sumum ákveðin lykt hræðileg á meðan aðrir taka varla eftir henni. Þetta var eitt af því sem nýja rannsóknin beindist að.
1.000 Kínverjar og 364, af ýmsum uppruna, sem búa i New York tóku þátt í rannsókninni. Þátttakendurnir þefuðu af 10 mismunandi lyktum. Í stuttu máli sagt þá segja vísindamennirnir að út frá því hvernig þátttakendurnir svöruðu spurningum um þá lykt sem þeir fundu þá sé ekki annað að sjá en að lyktarskyn fólks fari versnandi.