fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Pressan

Vélvirki fann listaverk í ruslatunnu í yfirgefinni hlöðu – Mörg hundruð milljóna virði

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. apríl 2022 19:30

Eitt af innpökkunarverkum Hines frá því á níunda áratugnum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jared Whipple, sem starfar sem vélvirki í Connecticut í Bandaríkjunum, fann mörg hundruð listaverk eftir Francis Hines í ruslatunnu í yfirgefinni hlöðu í Watertown. Verkin eru metin á milljónir dollara en það svarar til mörg hundruð milljóna íslenskra króna.

Hines lést 2016, 96 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir að pakka húsum inn sem hluta af listsköpun. Hann pakkaði meðal annars rúmlega 10 húsum í New York inn.

Hann hafði komið verkum sínum fyrir í hlöðunni að sögn Hearts Connecticut Media Group.

Listaverkin sem fundust í hlöðunni eru meðal annars málverk, höggmyndir og litlar teikningar. Talið er að málverkin seljist að meðaltali fyrir 22.000 dollara og teikningarnar fyrir 4.500 dollara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sökudólgurinn í dularfullum veikindum var lítt geðslegur ferðafélagi

Sökudólgurinn í dularfullum veikindum var lítt geðslegur ferðafélagi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eru flugsæti á tveimur hæðum framtíðin? – Netverjar hafa þetta að segja

Eru flugsæti á tveimur hæðum framtíðin? – Netverjar hafa þetta að segja
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu nýja kórónuveiru sem getur smitað fólk á sama hátt og COVID-19

Fundu nýja kórónuveiru sem getur smitað fólk á sama hátt og COVID-19
Pressan
Fyrir 3 dögum

Níræð kona svalt til bana á heimili sínu eftir að sonur hennar lést

Níræð kona svalt til bana á heimili sínu eftir að sonur hennar lést