Ronin Network er bitakeðja (blockchain) fyrir spil á netinu, meðal annars fyrir hið vinsæla Axie Infinity spil.
Skýrt var frá þjófnaðinum í fréttabréfi Ronin. Fram kemur að þjófarnir hafi sloppið með 173.600 einingar af ethereum, sem er rafmynt, og 25,5 milljónir USDC sem er mynt sem er bundin við Bandaríkjadal á föstu gengi 1:1.
Bloomberg hefur eftir Wilfred Daye, forstjóra Securitize Capital, að það að sex dagar hafi liðið þar til þjófnaðurinn uppgötvaðist veki mikla athygli og segi að eitthvað kerfi þurfi að vera til staðar til að fylgjast með ólöglegum millifærslum. Bloomberg segir þetta vera einn stærsta rafmyntaþjófnað sögunnar.