Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Eli hafi haldið mæðgunum föngnum í hjólhýsi í Cherokee County. Taylor hringdi í neyðarlínuna um klukkan 19.15 og bað um aðstoð vegna heimilisofbeldis. Þegar lögreglan kom á vettvang opnaði Eli dyrnar en var fljótur að loka þeim aftur þegar hann sá að það voru lögreglumenn sem höfðu knúið dyra.
Ástandið fór síðan úr böndum þegar Clesslynn opnaði dyrnar og Taylor datt út um þær. Eli skaut hana þá og skaut síðan rúmlega 90 skotum að þeim fjórum lögreglumönnum sem voru komnir á vettvang. Þeir svöruðu skothríðinni ekki að sögn lögreglunnar.
Því næst kom fjöldi lögreglumanna, frá ýmsum löggæslustofnunum, á vettvang, þar á meðal var sérsveit lögreglunnar í Joplin.
Skotum var hleypt af og hæfði eitt skot frá sérsveitarmanni Clesslynn sem lést. Eli skaut síðan sjálfan sig. New York Post skýrir frá þessu.