Mirror segir að unnusti hennar, Dmitry Korovin, hafi viðurkennt að hafa kyrkt hana og síðan ekið 500 kílómetra til Lipetsk þar sem hann skildi líkið eftir í ferðatösku í skottinu. Áður hafði hann sofið við hlið líksins í þrjár nætur á hótelherbergi.
Í yfirheyrslum sagðist hann hafa myrt hana vegna deilna um fjármál.
Hann hélt áfram að birta myndir af henni á samfélagsmiðlum eftir dauða hennar til að reyna að villa um fyrir fólki og telja því trú um að hún væri enn á lífi.
Rússneska lögreglan hefur birt myndband þar sem Korovin sýnir hvernig hann varð Vedler að bana.