Vísindamenn við University of Louisville reyndu að kortleggja þetta í vísindagrein sem hefur verið birt í Frontiers in Aging Neuroscience. Sky News skýrir frá þessu.
Fram kemur að í rannsókninni fylgdust vísindamennirnir með heilastarfsemi 87 ára karlmanns í 15 mínútur. Inni í þessum mínútum er tíminn rétt áður en hann lést og rétt eftir andlátið. Þeir notuðu rafskaut til að mæla heilastarfsemina.
Það var tilviljun sem réði því að þeir fylgdust með heilastarfsemi mannsins því verið var að skanna hann vegna flogakasta þegar hann fékk hjartaáfall og lést.
Á síðustu 30 sekúndunum fyrir síðasta hjartsláttinn og fyrstu 30 sekúndunum eftir síðasta hjartsláttinn mældist aukning í svokölluðum gammabylgjum en þær tengjast „meira þróaðri heilastarfsemi og eru sérstaklega virkar þegar fólk einbeitir sér, dreymir, hugleiðir eða rifjar upp gamlar minningar.
Það að þessar gammabylgjur hafi gert vart við sig á þessum tímapunkti bendir að sögn til að heilastarfsemin á dánarstundinni líkist þeirri sem á sér stað þegar okkur dreymir, hugleiðum eða rifjum upp gamlar minningar.
Ajmal Zemmar, taugalæknir, sem vann að rannsókninni sagði í samtali við ZME Science að rannsóknin sýni okkur að þegar ástvinir okkar hafa lokað augunum og séu reiðubúnir til að yfirgefa okkur þá séu heilar þeirra hugsanlega að endurupplifa bestu augnablik lífs þeirra.