Fimm voru skotin til bana við kirkju í Sacramento í Kaliforníu í gærkvöldi að staðartíma. Þrjú hinna látnu eru börn yngri en 15 ára að sögn Rod Grassman talsmanns lögreglunnar.
ABC10 skýrir frá þessu. Haft er eftir Grassman að börnin séu börn árásarmannsins en hann tók eigið líf að morðunum afstöðnum. Grassman sagði að ekki væri búið að bera kennsl á fimmta fórnarlambið.