Þetta sagði Thomas Mertens, formaður Stiko, í samtali við Funke í morgun. Hann sagði að gögn frá Ísrael sýni að fjórði skammturinn veiti aukna vernd gegn alvarlegum veikindum af völdum veirunnar og því muni Stiko mæla með fjórða skammtinum.
Ný ísraelsk rannsókn leiddi í ljós að með fjórða skammtinum af mRNA-bóluefni eykst magn mótefni í blóði mikið en þó ekki það mikið að það komi í veg fyrir smit.
Það eru bóluefnin frá Pfizer/BioNTech og Moderna sem byggjast á mRNA-tækninni.
Faraldurinn geisar af krafti í Þýskalandi en í gær var smitmet slegið þegar 208.000 greindust með veiruna. Smittölur gærdagsins þýða að nú hafa rúmlega 10 milljónir Þjóðverja greinst með veiruna síðan faraldurinn skall á.
En þrátt fyrir mikinn fjölda smitaðra þá er fjöldi dauðsfalla og sjúkrahúsinnlagna nokkuð stöðugur.