Hún segir að fólk, sem hafi horft á myndböndin hennar á TikTok, hafi bent henni á að geirvörturnar hennar sjáist vel. Hún segist meðvituð um þetta og hafi komist að þeirri niðurstöðu að þetta hafi byrjað eftir að hún fékk skammt númer tvö af bóluefni Pfizer. Hún segir undarlegt að þetta gerist, sérstaklega þegar það er 40 stiga hiti.
Margar konur hafa skrifað athugasemdir við myndbandið og segjast hafa lent í því sama.