Málið vakti mikla athygli á sínum tíma en Helge var prestur í Knutby, sem er lítill bær austan við Uppsala. Hann var prestur í Hvítasunnusöfnuði í bænum en söfnuðurinn var ráðandi afl í bænum.
Í réttarhöldunum 2004 kom fram hvernig þessi vinsæli prestur hafði talið 26 ára barnapíu sína, Sara Svensson, á að myrða eiginkonu hans, Alexandra Fossmo. Helge heilþvoði hana og misnotaði kynferðislega. Hann var þá 32 ára. Hann gaf henni skipanir í nafni guðs og hún hlýddi. Sjálfur reyndi Helge að myrða nágranna sinn.
Fyrir dómi sagði Sara meðal annars: „Það var á mína ábyrgð að sjá til þess að eiginkona prestsins kæmist til himnaríkis. Presturinn sagði að ást okkar væri himnesk og að kynferðislegt samband okkar væri ekki framhjáhald þrátt fyrir að við værum bæði gift. Við vorum hluti af félagsskap og samfarirnar voru hamingjuverknaður fyrir guð.“
Sara bjó í svefnherbergi prestins á meðan hann barðist við djöfulinn í henni eins og hún sagði. Hverjum áfangasigri var fagnað með samförum sagði hún. Á meðan bjó Alexandra í gestaherbergi á neðri hæð hússins.
Sara var dæmd til vistunar og meðferðar á geðdeild og var látin laus 2011.