Sky News segir að engar fréttir hafi borist af slysum á fólki eða dauðsföllum á Tonga af völdum sprengingarinnar og flóðbylgjunnar sem skall á eyjunum í kjölfarið. Vitað er að tvær konur drukknuðu á strönd í Perú þegar flóðbylgja, af völdum sprengingarinnar, skall á ströndum landsins.
Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, hefur heitið Tonga stuðningi og hjálp en segir að öskuskýið, sem liggur yfir eyjunum, hafi komið í veg fyrir að hægt sé að hefja hjálparstarf. Hann sagði að einnig geri það hjálparstarf erfitt að fjarskiptasamband við eyjurnar sé lítið en allt sé gert sem hægt sé til að hjálpa íbúum Tonga.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, sagði að fjarskiptasamband við Tonga sé mjög takmarkað og ekki hafi tekist að ná sambandi við nein svæði þar nema höfuðborgina Nuku´alofa. Hún sagði að þykkt öskulag liggi yfir höfuðborginni en íbúarnir séu rólegir og ástandið stöðugt.
Alþjóða rauði krossinn hefur virkjað félög sín á Kyrrahafssvæðinu til að geta veitt íbúum Tonga aðstoð. Sky News hefur eftir Katie Greenwood, yfirmanni Alþjóða rauða krossins í Kyrrahafi, að út frá þeim litlu upplýsingum sem hafa borist megi ætla að eyðileggingin sé gríðarleg, sérstaklega á ystu eyjunum.