Meðal þeirra skilaboða sem hann sendir okkur um of lítinn svefn er að það getur haft neikvæð áhrif á líkamsþyngdina. Svefnvana líkami framleiðir meira af efni sem heitir ghrelin en það eykur svengdartilfinningu. Hann framleiðir einnig minna af hormóni sem heitir leptín en það eykur mettunartilfinningu. Svefnskortur leiðir líka yfirleitt til meiri löngunar í feita og sætan mat. Svo hefurðu að auki fleiri klukkustundir til að borða því þú sefur of lítið!
Svefnskortur hefur einnig neikvæð áhrif á insúlín. Það veldur því að magn blóðsykurs eykst og það getur á endanum leitt til sykursýki.
Svefnskortur hefur áhrif á ónæmiskerfið og getu þess til að vernda líkamann. Ef þú sefur of lítið ertu móttækilegri fyrir sýkingum og átt erfiðara með að berjast gegn þeim.
Húðin fær að kenna á því ef þú sefur ekki nóg. Of lítill svefn eykur magn stresshormónsins kortísól í líkamanum og það hefur slæm áhrif á húðina. Einnig framleiðir hann minna af öðru hormóni sem lagar vef, vöðva og húð.
Svefn er forsenda þess að þú getir munað, lært, einbeitt þér, tekist á við áskoranir og verið skapandi. Ef það vantar upp á svefninn verður viðbragðstími þinn, fjöldi mistaka og veikindi meiri en áður. Þú verður í meiri hættu á að glíma við þunglyndi og stress.
Það hefur líka slæm áhrif á hjartað ef það skortir upp á svefninn og líkurnar aukast á ýmsum hjartakvillum. Ástæðan er að of lítill svefn veldur því að blóðþrýstingurinn og púlsinn sveiflast fram og aftur í stað þess að fara á hvíldarstig.