Fyrir átta árum fékk Center for Theological Inquiry við Princeton háskólann 1,1 milljón dollar í styrk til að rannsaka hugsanleg viðbrögð mannkynsins við tíðindum um að vitsmunaverur séu til á öðrum plánetum. Þar verður slíkum rannsóknum haldið áfram.
Í væntanlegri bók, „Astrobiology and Christian Doctrine“, mun breski presturinn og doktorinn, Andrew Davidson sem kennir við Cambridgeháskólann, ræða hvernig fólk af mismunandi trúarbrögðum mun bregðast við tíðindum af því að við höfum fundið vitsmunaverur utan jarðarinnar. Hann segir að guð hafi hugsanlega skapað önnur lífsform í alheiminum og byggir það á þeirri trú að guð sé óendanleg vera sem geti skapað eins mikið og hann vill.
Carl Pilcher, fyrrum yfirmaður geimlíffræðideilar NASA, segir að „óhugsandi“ að trúa að jörðin sé eina plánetan þar sem líf þrífist. Það séu 100 milljarðar stjarna í vetrarbrautinni okkar og rúmlega 100 milljarðar vetrarbrauta í alheiminum.
Hann segir að guðfræðingar hafi verið fengnir til aðstoðar til að byggja brú á milli vísinda og trúarbragða og til að „íhuga afleiðingarnar af að nota vísindalega verkfæri til að reyna að fá svar við spurningu sem hin ýmsu trúarbrögð hafa íhugað í mörg hundruð eða þúsundir ára“.