fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Talibanar vilja láta hálshöggva gínur

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 7. janúar 2022 19:00

Liðsmenn Talibana. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Talibanar verða líklega seint sagðir frjálslyndir, umburðarlyndir eða víðsýnir. Þeir hafa þrengt mjög að réttindum stúlkna og kvenna eftir að þeir komust til valda í Afganistan og sífellt berast fréttir af því sem þeir eru að gera. Eitt það nýjasta er að þeir hafa fyrirskipað verslunareigendum að hálshöggva allar gínur. Ástæðan er að það brýtur gegn íslömskum lögum að vera með brúður sem líkjast fólki.

Þetta sagði Aziz Rahman, yfirmaður þess sem má einna helst kalla siðferðisráðuneytis landsins. Hann sagði að verslunareigendum hafi verið fyrirskipað að hálshöggva gínur sínar því þær falli ekki að sharíalögum. Hann sagði að það dugi ekki að hylja höfuðin eða fela gínurnar, englar Allah muni þá ekki koma inn í verslanirnar eða önnur hús til að veita eigendunum blessun sína.

Þessi stefna Talibana gildir enn sem komið er ekki á landsvísu en í vesturhluta landsins eru þeir byrjaðir að láta til sína taka vegna þessa. Nýlega fór upptaka af Talibönum saga höfuð af gínum á flug á samfélagsmiðlum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga