fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Pressan

Kanada opnar fyrir bólusetta útlendinga

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 8. september 2021 06:59

Nú er hægt að fara í frí til Kanada. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá og með gærdeginum getur fólk frá öllum heiminum komist inn í Kanada án þess að fara í sóttkví en þetta á þó aðeins við um þá sem eru bólusettir. Landið hefur að mestu verið lokað fyrir útlendingum síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á.

CBC skýrir frá þessu. Í ágúst voru landamærin opnuð fyrir nágrannana í Bandaríkjunum og nú er röðin komin að öðrum þjóðum. Fram að þessu höfðu ákveðnar undantekningar verið veittar á þessu en eftir að opnað var fyrir komur Bandaríkjamanna til landsins fjölgaði þeim um helming á fyrstu vikunni en það var 9. til 15. ágúst.

Frá 9. til 26. ágúst reyndust 0,19% bólusettra ferðamanna vera með kórónuveirunnar en tilviljanakennd sýnataka var við landamærin.

Þeir sem hyggja á ferð til Kanada þurfa að hafa lokið bólusetning að minnsta kosti 14 dögum áður en þeir koma til landsins. Þeir þurfa einnig að skrá komu sína í síðasta lagi 72 klukkustundum fyrir áætlaðan komutíma í sérstakt app.

Smitum og sjúkrahúsinnlögnum hefur farið fjölgandi að undanförnu í Kanada en flestir hinna smituðu og þeirra sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús eru óbólusettir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanlegur spádómur Baba Vanga um Pútín og Evrópu á þessu ári

Óhugnanlegur spádómur Baba Vanga um Pútín og Evrópu á þessu ári
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þeir vildu ekki vera aðskildir en það endaði með ólýsanlegum hörmungum

Þeir vildu ekki vera aðskildir en það endaði með ólýsanlegum hörmungum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er hægt að hita kaffi á nýjan leik?

Er hægt að hita kaffi á nýjan leik?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum KGB-njósnari segir Trump hafa fengið dulnefnið Krasnov þegar hann gekk til liðs við Rússa árið 1987

Fyrrum KGB-njósnari segir Trump hafa fengið dulnefnið Krasnov þegar hann gekk til liðs við Rússa árið 1987
Pressan
Fyrir 4 dögum

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi