Á síðustu tveimur árum er hann sagður hafa haldið villtar kynlífsorgíur fyrir samkynhneigða karlmenn. Lögreglan er nú að yfirheyra mörg hundruð karla sem eru taldir hafa sótt þessar orgíur.
Spagnesi er einnig grunaður um að hafa keypt mikið magn af kókaíni og GHB, sem er oft kallað nauðgunarlyfið“, og selt áfram.
Hann er sagður hafa haldið kynlífsorgíur einu sinni í viku og hafi 20-30 karlar tekið þátt í þeim hverju sinni.
Það var bókari kirkjunnar sem rak augun í að peninga vantaði í kassann og hófst þá rannsókn og lá slóðin til Spagnesi. Í fyrstu sagði hann að peningarnir hefur runnið til bágstaddra fjölskyldna en staðreyndin er að þær fengu ekki neitt af þessum peningum. Spagnesi var því kominn út í horn og varð að lokum að játa að hann hefði notað peningana í eigin þágu.