Margrethe Vestager, sem fer með mál er varða stafræna tækni í Framkvæmdastjórninni, segir að með þessu verði stórt skref stigið í umhverfismálum og fyrir neytendur sem þurfi ekki lengur að ergja sig á gagnslausu hleðslutækjum sem safnast upp í skúffum og skápum.
Hún segir að Framkvæmdastjórnin hafi gefið raftækjaframleiðendum rúman tíma til að koma með eigin lausn á þessu en nú sé einfaldlega kominn tími til að grípa til lagasetningar.
Hugmyndir um að gera hleðslutæki fyrir síma og spjaldtölva eins hafa verið uppi á borðum í rúmlega áratug. Á þessum tíma hefur tegundum hleðslutækja fækkað úr 30 í þrjár en þrjár er of mikið að mati Framkvæmdastjórnarinnar. Hún leggur því til að í framtíðinni verði framleiðendum gert skylt að sjá til þess að hægt verði að hlaða alla farsíma, spjaldtölvur, heyrnartól, stafrænar myndavélar og þráðlausa hátalara með USB-C tengi. Það er nú þegar notað fyrir flesta Androidsíma.
Aðgerðir Framkvæmdastjórnarinnar eru högg fyrir Apple sem framleiðir sína eigin tegund af hleðslusnúrum fyrir vörur sínar. Fyrirtækið hefur haldið því fram að það að gera framleiðendum skylt að nota sömu gerð hleðslutækja geti haldið aftur af nýsköpun.
Ef frumvarp Framkvæmdastjórnarinnar verður samþykkt af aðildarríkjum ESB og þingi þess þá verður Apple að tryggja að hægt verði að hlaða raftæki frá fyrirtækinu með USB-C tengi í framtíðinni. Þetta lokar þó ekki á notkun hleðslutækja Apple því sími má vera með meira en eitt tengi til rafhleðslu.
Framkvæmdastjórnin segir að það að sama tegund hleðslutækja virki fyrir öll raftæki muni spara neytendum peninga því þeir geti keypt sér ný raftæki án þess að kaupa nýtt hleðslutæki. Þetta mun að auki minnka magn raftækjasorps í ESB um 1.000 tonn á ári en það er um 11.000 tonn á ári núna.