Hann er grunaður um að hafa orðið Gabby að bana og stendur víðtæk leit yfir að honum í Flórída en hann lét sig hverfa á þriðjudaginn eftir að hafa dvalist á heimili foreldra sinna í nokkra daga eftir að hann kom einn heim úr ferðinni. Hann vildi ekki ræða við lögregluna eða skýra neitt frá hvað hefði orðið um Gabby.
Parið hafði verið á ferð þvert yfir Bandaríkin og skýrði frá henni á samfélagsmiðlum.
Brent Blue, dánardómsstjóri í Tetonsýsu úrskurðaði í gær að Gabby hefði verið myrt en skýrði ekki frá hvernig þar sem endanlegrar niðurstöðu krufningar er beðið.
Lík Gabby fannst á sunnudaginn í á afskekktu svæði um 50 kílómetra norðaustan við Jackson í Wyoming.
Lögreglan gerði húsleit heima hjá foreldrum Brian á mánudaginn og lagði hald á fjölda muna auk bíls hans.