„Áttu sex börn?“ spurði þáttastjórnandinn og því svaraði Johnson: „Já, það er frábært. Þetta er mikil vinna en frábær. Ég skipti um margar bleiur en ég elska það.“
Með þessu hefur verið staðfest hversu mörg börn Johnson á en oft á tíðum hafa verið vangaveltur uppi um hversu mörg börn hann á.
Með fyrrum eiginkonu sinni, Marina Wheeler, á hann Lara, Milo, Cassia og Theodore. Stephanie eignaðist hann eftir ástarævintýri 2009. Hann á Wilfred með núverandi eiginkonu sinni, Carrie, og eiga þau von á öðru barni, sjöunda barni Johnson.
Fram að þessu hafði Johnson forðast að skýra frá hversu mörg börn hann á. Fyrir kosningarnar 2019 sagði hann meðal annars: „Ég elska börnin mín mjög heitt en þau eru ekki þátttakendur í þessum kosningum og þess vegna vil ég ekki ræða um þau.“
Johnson er fjórði breski forsætisráðherrann á 170 ára tímabili til að eignast barn á embættistíð sinni. David Cameron eignaðist dóttur 2010 þegar hann gegndi embætti forsætisráðherra. Tony Blair eignaðist fjórða barn sitt 2000 en þá hafði hann verið forsætisráðherra í þrjú ár. Síðan verður að fara allt aftur til 1852 til að finna dæmi um forsætisráðherra sem eignaðist barn á valdatíma sínum. Það var John Russel sem eignaðist dreng það ár.