Í gær tilkynntu borgaryfirvöld að búið væri að taka sýni úr nær öllum 11 milljónum borgarbúa nema börnum yngri en sex ára og námsmönnum sem eru að heiman. 37 greindust með veiruna og voru með sjúkdómseinkenni. 41 til viðbótar greindist með veiruna en voru ekki með nein sjúkdómseinkenni. Xinhua fréttastofan skýrir frá þessu.
28.000 heilbrigðisstarfsmenn sáu um sýnatökuna sem fór fram á 2.800 stöðum í borginni.
Kínverjar takast nú á við faraldra víða um land og reyna að hemja þá. Það er hið bráðsmitandi Deltaafbrigði sem herjar á borgir og bæi. Milljónum manna hefur verið skipað að halda sig heima og meðal annars hefur heilu hverfunum í Peking verið lokað og fólki meinað að yfirgefa þau.
Fyrirhugað er að vera með umfangsmiklar skimanir í mörgum borgum og bæjum á næstu dögum.
Kórónuveiran kom fyrst fram í Wuhan í árslok 2019 og síðan breiddist hún út um heiminn.
Kínversk yfirvöld segja að 4.848 hafi látist af völdum COVID-19 í landinu en á heimsvísu hafa rúmlega fjórar milljónir látist. Margir sérfræðingar segja að hin lága dánartíðni í Kína sé einfaldlega ekki rétt, yfirvöld reyni að leyna raunverulegum fjölda látinna.