Svo undarlegt sem það nú er þá þótti fangelsisyfirvöldum ekkert athugavert við að setja þá saman í klefa þrátt fyrir að Robert hafi brotið hrottalega gegn systur Shane. Fox News skýrir frá þessu.
Í tilkynningu sem Shane Goldsby sendi fjölmiðlum kemur fram að Robert Munger hafi lýst afbrotum sínum fyrir honum í smáatriðum. Segir Shane að hann hafi fyllst „ofsareiði“ við þetta og hafi ráðist á Robert. Bandarískir fjölmiðlar segja að hann hafi fengið 14 högg í andlitið og 4 spörk. Þetta lifði hann ekki af og nú hefur Shane verið dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir að hafa myrt hann. Fyrir hafði hann hlotið dóm fyrir stuld á lögreglubifreið og fyrir að hafa sært hermann.
Fyrir dómi harmaði Shane það sem hann gerði og sagðist ekki geta ímyndað sér hvernig það væri að missa elskaðan ástvin á þennan hátt. „Ég bið eiginkonu hans afsökunar sem og alla fjölskyldu hans og vonast til að þau jafni sig á því sem ég á sök á,“ segir í yfirlýsingu frá honum.
Shane hafði kvartað yfir að þurfa að deila klefa með Robert en fangelsisyfirvöld höfðu engar áhyggjur af því og hafa vísað því á bug að þau hafi vitað um tengsl mannanna.