Lögreglunni barst fjöldi tilkynninga um skothvelli í Berga klukkan 19.05 og fylgdi tilkynningunum að fleiri en einn væru særðir. Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir piltana tvo mikið særða. Aftonbladet segist hafa heimildir fyrir að þeir séu 15 og 16 ára. Þeir hafa að sögn komið við sögu lögreglunnar áður og segir lögreglan að reikna megi með að skotárásin tengist átökum glæpagengja. Tugum skota var að sögn hleypt af en þau hæfðu ekki öll piltana.
Lögreglan hefur unnið að rannsókn málsins í alla nótt en enginn hefur verið handtekinn vegna þess. Rætt hefur verið við vitni og lagt hefur verið hald á upptökur úr eftirlitsmyndavélum á svæðinu.