Þau voru gift í um 70 ár og var Philip stoð hennar og stytta. Peter Phillips, elsta barnabarn Elísabetar, skýrði nýlega frá því að það hafi verið sérstaklega erfitt við útförina að fjölskyldumeðlimir gátu ekki farið til Elísabetar og faðmað hana. BBC skýrir frá þessu. „Hugur okkar var hjá ömmu minni. Við reyndum að styðja hana eins vel og við gátum. Allir sáu myndirnar af hennar hátign sitjandi alein. Þetta hefði verið eins hjá öllum fjölskyldum, það erfiðasta var að mega ekki faðma þann sem stóð þeim, sem við höfðum misst, næst,“ er haft eftir honum.
Peter Phillips er 43 ára og er elsta barnabarn drottningarinnar en hann er einkasonur Önnu prinsessu en hún eignaðist hann með fyrsta eiginmanni sínum, Mark Phillips.