Lýst var eftir Shanae á föstudaginn eftir að hún hafði hringt í vinkonu sína í Bandaríkjunum og er óhætt að segja að símtalið hafi verið hrollvekjandi. Fyrst heyrði vinkona hennar Shanae grátbiðja einn eða fleiri um að þyrma henni: „Please let me go, ok. Just let me go.“ (Gerðu það, leyfðu mér að fara, ok. Leyfðu mér bara að fara), sagði hún. Rétt áður en sambandið rofnaði öskraði hún: „Taktu hendurnar af mér.“
Ástralskir fjölmiðlar segja að utanríkisráðuneytið hafi veitt fjölskyldu Shanae aðstoð síðan málið kom upp en það er lögreglan í Georgíu sem rannsakar það en Shanae hafði verið nauðgað áður en hún var myrt.
Vakhtang Gomelauri, innanríkisráðherra Georgíu, segir að ákveðinn aðili sé grunaður um morðið en hafi ekki enn verið handtekinn en allt kapp verði lagt á að hafa hendur í hári hans.
Vitað er að Shanae fór ein að heiman síðdegis á föstudaginn. Hún var í útivistarfatnaði og með grænan bakpoka. Klukkustund síðar sagðist kona ein hafa heyrt konu öskra við göngustíg í Mtatsmindafjöllunum. Um vinsælan stað er að ræða þar sem ungt fólk lætur gjarnan reyna á getu sína á reiðhjólum, mótorhjólum eða á fæti. Annað vitni segist hafa séð mann stunda „ofbeldishneigt kynlíf“ með konu á þessu svæði.