JydskeVestkysten skýrði frá þessu nýlega. Í samtali við BT sagðist hún meina bólusettu fólki að gista á gistiheimilinu þar sem hún væri sjálf slæm til heilsunnar og það að leyfa bólusettu fólki að gista kalli á enn meiri þrif en ella og það sé henni erfitt. En það er ekki eina ástæðan því hún er einarður andstæðingur bólusetninga gegn kórónuveirunni og segir að ekki eigi að kalla bóluefnið bóluefni.
„Ég þekki fólk sem finnur fyrir aukaverkunum við að vera of nálægt bólusettu fólki og ég myndi ekki njóta þess að byrja skyndilega aftur á blæðingum, að fá hormónatruflanir eða blóðtappa af því að ég fæ spike prótín,“ sagði hún einnig.
Hún telur að bóluefnin hafi ekki verið samþykkt til notkunar, hafi aðeins fengið neyðarheimild. Hún segist aldrei hafa farið í skimun og noti heldur ekki handspritt eins og yfirvöld hvetja fólk til. „Ég er efins og ég vil ekki láta mér líða verr en í dag,“ sagði hún en hún glímir við mígreni, bakveiki og fleiri veikindi.
Hún hefur hætt viðskiptum við bókunarsíðuna Booking.com og það þarf kannski ekki að koma á óvart að hún hefur ekki fengið einn einasta gest til sín í eitt ár. Hún sagði að þar sem maðurinn hennar sé með góð laun þá komist þau af þrátt fyrir að hún hafi engar tekjur af gistiheimilinu.