Lögreglan í Altamonte Springs segir að einn fundargesta hafi hringt í lögregluna og tilkynnt að eitthvað hefði gerst heima hjá Lynn. Endurlífgun var reynd en hún bar ekki árangur en Lynn var með skotsár á höfði að sögn lögreglunnar. Sky News skýrir frá þessu.
Fram kemur að skammbyssan hafi verið í eigu barnsföður Lynn en þau eiga tvö ung börn saman. Börnin slösuðust ekki.
Á síðasta ári komu að minnsta kosti 369 mál upp í Bandaríkjunum þar sem börn, yngri en 18 ára, skutu óvart af skotvopnum. 142 létust að sögn Everytown for Gun Safety samtakanna.