Varnarmálaráðuneytið tilkynnti nýlega að öllum hermönnum verði skylt að láta bólusetja sig gegn veirunni og fagnaði Joe Biden, forseti, þessu. Lloyd Austin, varnarmálaráðherra, sagði að herinn þurfi að vera heilbrigður og við öllu búinn ef hann á að geta varið þjóðina. Hann hvatti alla hermenn og borgaralega starfsmenn hersins sem og verktaka sem starfa fyrir hann til að láta bólusetja sig nú þegar. Hann sagði að öll þau bóluefni sem bandaríska lyfjastofnunin hafi heimilað notkun á gegn kórónuveirunni sé örugg og virki vel.
Í minnisblaði sem Mark Milley, formaður herráðsins, sendi frá sér eftir tilkynningu varnarmálaráðuneytisins kemur fram að hann styðji þessa ákvörðun sem sé nauðsynleg. Bóluefni séu besta vörnin gegn COVID-19. Hann sagði einnig að deildir hersins hafi nú nokkrar vikur til að undirbúa bólusetningar, ákveða hversu mikið magn þær þurfa og hvernig staðið verður að framkvæmdinni.
Með þessari ákvörðun bætist bólusetning gegn kórónuveirunni á lista yfir bóluefni sem starfsmenn hersins verða að láta bólusetja sig með. Það er mismunandi eftir staðsetningu þeirra í heiminum hversu mörg bóluefni þeir þurfa en þeir sem þurfa að fá flest fá 17.