The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að Caouissin hafi játað að hafa myrt mág sinn, Pascal Troadec 49 ára, eiginkonu hans, Brigitte 49 ára, og börn þeirra, Sébastien 21 árs og Charlotte 18 ára, í febrúar 2017.
Caouissin var sannfærður um að fjölskyldan leyndi stórum gullsjóði, gullstöngum og gullmynt, fyrir eiginkonu hans, Lydie, systur Pascal, og væri þar með að hlunnfara hana um hennar hlut af fjársjóðnum. Orðrómur hafði gengið um tilvist fjársjóðsins. Fyrir dómi kom fram að Caouissin væri „venjulegur“ maður sem hefði orðið heltekinn af fjársjóðnum en engar sannanir eru fyrir að hann sé til.
Hann njósnaði um fjölskylduna á heimili hennar nærri Nantes og reyndi að hlusta á samtöl þeirra með því að leggja hlustunarpípu upp að gluggum hússins. Þegar hann var truflaður við þessa iðju barði hann Pascal til bana og myrti síðan aðra úr fjölskyldunni. Sébastien og Charlotte voru sofandi þegar hann myrti þau.
Hann sagaði líkin síðan í sundur og brenndi og gróf líkamshlutana. Lögreglan fann síðar 397 líkamshluta á landareign Couissin í Brittany. Eiginkona hans var dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa aðstoðað hann við að losa sig við líkin.
Caouissin játaði morðin en sagði að um „óhapp“ hafi verið að ræða.
Samband Caouissin og Pascal hafði verið slæmt árum saman. Caouissin var sannfærður um að mágur hans og fjölskylda hans leyndu hann 50 kílóa gullfjársjóði sem faðir Lydie og Pascal var sagður hafa fundið 2006 í kjallara húss í Brest. Gullið var sagt vera hluti af því gulli sem franski seðlabankinn faldi fyrir nasistum í síðari heimsstyrjöldinni.