Frá þessu er skýrt í British Medical Journal. „Við kynnum fyrsta staðfesta tilfelli lóðrétts brots á getnaðarlimi . . . sem fertugur maður hlaut þegar hann stundaði kynlíf,“ segir meðal annars í greininni.
Fram kemur að maðurinn hafi brotið getnaðarliminn þegar hann hitti ekki á leggangaop kynlífsfélagans þegar hann ætlaði að þrýsta limnum inn af miklum krafti. Limurinn lenti á svæðinu á milli legganganna og endaþarmsins með þessum sársaukafullu afleiðingum.
Eins og kunnugt er þá eru engin bein sem geta brotnað í getnaðarlimnum en samt sem áður er talað um brot en í raun er um að ræða vef sem skaddast. Ef limurinn er í reisn þegar óhapp verður er tilfinningin að sögn á borð við þá sem fólk finnur fyrir þegar það beinbrotnar.
Venjulega brotna getnaðarlimir lárétt en í þessu máli er um að ræða fyrsta staðfesta tilfellið þar sem limur brotnar lóðrétt.
Í greininni kemur fram að 88,5% allra áverka á getnaðarlimum verði við kynlífsiðkun. Tölfræði síðustu 20 ára sýnir að hættulegustu stellingarnar hvað þetta varðar eru þegar karlinn er ofan á eða þegar konan er á fjórum fótum og karlinn kemur aftan að henni.
Myndir af getnaðarlim mannsins leiddu í ljós að hann var með 3 cm lóðréttan skurð í vef getnaðarlimsins. Læknar gerðu aðgerð á honum tæpum sólarhring eftir óhappið til að koma í veg fyrir að meiðslin yrðu varanleg. Hann náði sér fullkomlega og gat byrjað að stunda kynlíf á nýjan leik eftir sex mánuði.